Beint í efni
50 mínútur

Age Summum andlitsmeðferð

Einstök meðferð gegn aldurseinkennum

Markmið meðferðar

GUINOT, sérhæfir sig í húðumhirðu gegn öldrun og hefur þróað einstaka meðferð. Hún vinnur á efri og neðri húðlögum gegn öldrun á andliti, hálsi, bringu og höndum. Meðferðin vinnur á hrukkum, slappri húð sem skortir stinnleika, dökkum blettum og tapi á ljóma. Í Age Summum meðferðinni er unnið með einstaklega virk efni og sérhannaðar nuddhreyfingar sem skila sjáanlegum árangri á aðeins 50 mínútum.

Árangur

Í lok meðferðar hefur dregið sjáanlega úr aldurseinkennum, hrukkum og brúnum blettum. Húðin fær aukinn ljóma, verður unglegri og stinnari.
Andlitsmeðferð gegn öldrun húðar
Allar húðgerðir og þreytt húð

Undirbýr húðina fyrir andlitsmeðferðina með því að auka innsíun og endurnýjun húðar með því að fjarlægja dauðar yfirborðsfrumur. Húðin fær fallegri áferð og bjartari ásýnd.

Þetta serum virkjar ónæmiskerfi húðarinnar gegn öldrun með Immune Complex, sem hjálpar til við að berjast gegn öldrunaeinkennum húðarinnar með því að vernda Langerhans frumur. Hreinu C-vítamíni er bætt við serumið rétt fyrir notkun til að tryggja hámarks virkni. Melanoxyl gefur ljóma og dregur úr dökkum blettum.

10 sérhannaðar nuddhreyfingar sem vinna á andliti, hálsi, bringu og handarbökum. Hvert svæði er nuddað með sérstökum hreyfingum sem vinna á einkennum öldrunar. Nuddið ásamt virku innihaldsefnunum í serumi.

Blaðmaski fyrir andlit sem fyllir upp í og sléttir úr hrukkum, inniheldur Hýalúronsýru með lágan mólþunga og Mafane extract. Sérstakur maski fyrir háls, bringu og hendur sem vinnur gegn fínum línum og dregur úr dökkum blettum. Inniheldur Hýalúronsýru með lágan mólþunga, C-vítamín og Melanoxyl.