Beint í efni
45 mínútur

Hydra Summum andlitsmeðferð

Rakagefandi og þéttandi andlitsmeðferð

Markmið meðferðar

Sléttir húðina og veitir fylling og djúpvirkan raka. Að meðferð lokinni er húðin fullkomlega rakamettuð og endurheimtir vellíðan. Dregur úr hrukk­um og fínum línum.

Hentar húð sem er:
Rakaþurr | Þurr | Þroskuð | Viðkvæm |

Árangur

Húðin er fullkomlega rakamettuð og dýpt hrukka hefur greinilega minnkað. Að meðferð lokinni fær húðin aftur ljóma sinn og endurheimtir vellíðunartilfinningu.
Rakagefandi og þéttandi andlitsmeðferð
Rakaþurr húð, þurr húð, þroskuð húð, viðkvæm húð, feit húð, litbreytingar, hrukkur og fínar línur

Undirbýr húðina fyrir andlitsmeðferðina með því að auka innsíun og endurnýjun húðar með því að fjarlægja dauðar yfirborðsfrumur. Húðin verður áferðafallegri og fær aukinn ljóma.

Borið á andlit og augnsvæði, með sérstaka áherslu á hrukkur. Hydra Summum þykknið inniheldur hátt hlutfall af hýalúronsýru (með háan mólþunga), hjálpar til við að fylla í hrukkur og fínar línur.

Hydra Summum nuddkremið gefur húðinni djúpvirkan raka með hjálp hýalúronsýru og Hydralogic Complex. Þessi virka samsetning inniheldur Aquasilanol og Hydroxyte Complex endurskapar rakajafnvægi ungrar húðar með því að styrkja uppbyggingu hennar, draga úr vatnstapi og auka getu húðarinnar til að geyma og dreifa vatni.

Hydra Summum andlitsmaskinn er frískandi, kælandi og veitir mikinn og góðan raka. Inniheldur kröftug rakagefandi innihaldsefni eins og Hydralogic efnasamband og hýalúronsýru sem þétta og slétta húðina.